Yfirlýsing frá borgarfulltrúa vegna tillögu VG um sölu bilastæðahúsa
September 9th, 2009 // 10:22 pm @ admin // Engar athugasemdir
VG.is 4.9.2009
Tillaga Borgarráðsfulltrúa Vinstri grænna um að borgarráð feli Umhverfis og samgöngusviði að kanna kosti þess að bílastæðahús borgarinnar verði seld hefur vakið athygli en hún var samþykkt í borgarráði í dag. Af þessu tilefni vill undirritaður koma eftirfarandi á framfæri.
1. Ekki var lagt annað til en að kostir þessa yrðu kannaðir.
2. Það blasir við að mikill rekstrarvandi er fyrirsjáanlegur hjá borginni eins og örðum sveitarfélögum. Í fjárhagsáætlun þessa árs og 3ja ára áætlun er gert ráð fyrir því að gengisvístala myndi lækka meira en orðið hefur og atvinnuleysi er mun meira en gert var ráð fyrir. Allar spár eru í þessa átt og því er það ljóst að mikill niðurskurður vegna aukins kostnaðar og mynni tekna er yfirvofandi á næsta ári, komi ríkið ekki myndarlega til aðstoðar. Vinstri græn í borginni telja það ábyrgt að forgangsraðað verði í þágu velferðarmála og menntunar barna. Því þarf að líta til þess sem hugsanlega má selja.
3. Það er einlægur ásetningur VG í Reykjavík að efla almenningssamgöngur. Verði söluverðmæti bílastæðahúsa verulegt er hugsunin sú að almenningssamgöngur njóti góðs af. Þannig verði náð umhverfislegum markmiðum sem og þeim að þjóna ört vaxandi fjölda fólks sem ekki hefur lengur efni á því að eiga bíl.
4. Í greinagerð með tillögunni er það tekið fram að ef af þessu verði, þurfi að gæta að hafsmunum bíleigenda hvað varðar verðlag og aðgengi. Að sögðu mun VG hér eftir sem hingað til, verja hagsmuni starfsfólks.
Category : Úr fjölmiðlum
