Vill rannsaka spillingu meðal borgarfulltrúa
April 16th, 2010 // 3:58 am @ Þorleifur Gunnlaugsson // Engar athugasemdir
,,Nálægðin við höfuðpaura hrunsins hefur verið yfirþyrmandi hjá Reykjavíkurborg á þessu kjörtímabili,“ segir Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi VG sem vill að þáttur sveitarstjórnarfólks verði tekinn sérstaklega út í kjölfar bankaskýrslunnar. ,,Ákvarðanir í skipulagsmálum, úthutun lóða, sala almannaeigna, styrkir og boðsferðir til borgarfulltrúa,“ kalla á sérstaka rannsókn að mati Þorleifs.
Borgarráð samþykkti samhljóða tillögu í gær um að fela skrifstofu borgarstjórnar að undirbúa umfjöllun eða viðbrögð í framhaldi af bankaskýrslunni, um hvernig stjórnmálin og stjórnsýslan geti dregið lærdóm af niðurstöðum hennar. Þorleifur vildi hinsvegar ganga lengra og rannsaka hugsanlegan hlut stjórnmálafólks og stjórnsýslu almennt hjá borginni. Hann bendir á að borgarfulltrúar hafi margir hverjir þegið verulegar upphæðir í kosningasjóði og rándýrar boðsferðir auk þess sem allt skipulag miðborgarinnar hafi verið um langt skeið í gíslingu auðmanna.
Málið verður til umræðu á fundi borgarstjórnar á þriðjudag.
Category : Úr fjölmiðlum
