Hrafninn reiður
April 20th, 2010 // 4:01 am @ Þorleifur Gunnlaugsson // Engar athugasemdir
Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndaleikstjóri fékk frest til klukkan níu á föstudag til að taka til í kringum lóð sína í Lauganestanga. Fyrirhugað var að framkvæmdir hæfust í dag en því hefur Hrafn mótmælt harðlega.
Áralangt stríð hefur staðið um framkvæmdir Hrafns á Lauganestanga en borgaryfirvöld hafa verið gagnrýnd fyrir linkind í málinu.
Í bréfi frá borgaryfirvöldum til fjölmiðla kemur fram að umrætt svæði á Laugarnesi sé ekki bara land í eigu borgarinnar heldur útivistarsvæði, sem sé á Náttúruminjaskrá. Þar sé einnig að finna friðlýstar fornminjar. Bæði Forleifavernd ríkisins og Náttúrufræðistofnun Íslands hafa nú gert alvarlegar athugasemdir við umgengni á svæðinu og telja að þær feli meðal annars í sér brot á þjóðminjalögum.
Magnaður frekjugangur
Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi Vg átti frumkvæðið að gripið er til aðgerða nú gegn Hrafni en slíkt hefur þó staðið til lengi. Dofri Hermannsson segir á bloggi sínu að Hrafn hafi komist upp með magnaðan frekjugang gagnvart umhverfi sínu í Laugarnesinu. ,,Hann hefur látið stórvirkar vinnuvélar ryðja hluta af friðlýstri fjöru neðan við hýbýli sín og lagt undir sig svæði umhverfis lóð sína sem er margfalt stærra en lóðin sjálf. Sumu af draslinu hefur hann stillt upp á stöðum sem njóta verndar vegna menningarverðmæta og fornleifa.“
Umburðarlyndi borgaryfirvalda
Og líkt og Þorleifur hefur sagt í viðtali við Smuguna, finnst Dofra Hermannssyni að umburðarlyndi gagnvart Hrafni hafi verið sýnu meira en gagnvart öðrum borgarbúum í sömu stöðu.
,,Borgaryfirvöld hafa sýnt frekjugangi Hrafns Gunnlaugssonar ótrúlegt umburðarlyndi. Látið hann komast upp með að byggja kofaskrifli og stilla upp drasli á stærð við hús út um allt á meðan venjulegt fólk er jafnvel látið rífa kvisti af húsum sínum af því það var ekki búið að stimpla teikningar áður en byrjað var að byggja.“
Category : Úr fjölmiðlum
