Borgarráð vill að Orkuveitan elti Landsvirkjun og upplýsi um orkuverð til stóriðju
April 29th, 2010 // 6:22 pm @ Þorleifur Gunnlaugsson // Engar athugasemdir
Borgarráð ákvað í dag að beina þeim tilmælum til stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur að allt orkuverð verði opinberað. Þorleifur Gunnlaugsson, fulltrúi Vinstri grænna í borgarráði, lagði tillögu þess efnis að orkuverð vegna sölu OR til stóriðju verði gert opinbert og var hún samþykkt.
Í greinargerð með tillögunni segir að í ljósi þess að Landsvirkjun ætlar að upplýsa um orkuverð á aðalfundi sínum í næsta mánuði hljóti slíkt leyfi að vera auðsótt fyrir Orkuveituna.
„Þetta er í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er þar segir: „Stuðlað verði að gagnsæi í orkusölusamningum og leitað leiða til að aflétta leynd af orkuverði til erlendra stóriðjufyrirtækja. Stefnt verði að jafnræði í verðlagningu raforku í ólíkum atvinnugreinum“. Norðurál er eitt þeirra fyrirtækja sem skipta við Landsvirkjun en HS orka og OR selja einnig orku til Norðuráls,“ segir í greinargerðinni.
Category : Úr fjölmiðlum
