Orkuveitan og önnur fyrirtæki borgarinnar
January 20th, 2010 // 8:16 pm @ Þorleifur Gunnlaugsson // Engar athugasemdir
Síðan mikilvæg fyrirtæki borgarinnar voru færð frá A-hluta borgarsjóðs og þeim fengið ákveðið sjálfstæði (í B-hluta) hefur sigið á ógæfuhliðina hjá þeim flestum. Fjármálaskrifstofa borgarinnar sem og Innri endurskoðun hafa ítrekað sagt að B-hluta fyrirtækin séu stöðugt að fjarlægjast borgina en hún standi hins vegar í miklum fjárhagslegum ábyrgðum fyrir þau. Heppilegast væri ef hægt væri að snúa þessu við að mestu eða öllu leyti. Ekki síst nú þegar mikilvæg fyrirtæki á borð við Orkuveituna standa illa, að því virðist vegna offjárfestinga. Þegar upp staðið er fjárhagslegt öryggi borgarinnar að veði.
Category : Helstu baráttumál
