Lýðræði í borg
January 20th, 2010 // 9:14 pm @ Þorleifur Gunnlaugsson // Engar athugasemdir
Aðkoma borgarbúa að umfjöllun og ákvörðunum sem varða þeirra nærumhverfi hefur í raun stöðugt farið minnkandi. Kerfið hefur lítið breyst frá því fyrir stríð þegar borgarmörkin mótuðust af hafinu á aðra hönd og Hringbraut og Snorrabraut á hina. Þá voru borgarfulltrúar flestir í annarri vinnu og allir þekktu alla. Tilraunir R-listans til hverfavæðingar með raunverulegu íbúalýðræði voru stöðvaðar af Sjálfstæðismönnum og því er einbúið að ljúka verkinu fljótlega á næsta kjörtímabili.
Jafnframt þessu er nauðsynlegt að hverfa frá ólýðræðislegum vinnubrögðum þar sem minnihlutinn hefur takmarkaðan aðgang að embættismönnum, litlar upplýsingar og samráð um ákvarðanatöku er ekki lausnamiðað.
Category : Helstu baráttumál
