Frambjóðendabæklingur
January 23rd, 2010 // 12:46 am @ Þorleifur Gunnlaugsson // Engar athugasemdir
Hér fyrir neðan er texti sem verður í sameiginlegum frambjóðendabæklingi sem VG í Reykjavík mun gefa út á næstu dögum.
——
Þorleifur hefur m.a. setið í forsætisnefnd, borgarráði, stjórnkerfisnefnd, umhverfis- og samgöngunefnd, íþrótta- og tómstundarráði og í stjórn Orkuveitunnar, Faxaflóahafna, hjúkrunarheimilanna Eir og Skógarbæjar, Gagnaveitu Reykjavíkur, Neytendasamtakanna og Sorpeyðingar höfuðborgarsvæðisins. Hann er einnig varaformaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Næsta kjörtímabil verður sérstaklega vandasamt fyrir stjórnendur Reykjavíkurborgar. Því er spáð að gengið haldist áfram mjög lágt og atvinnuleysi aukist til muna. Við þessar aðstæður er mikilvægt að þeir sem taka við rekstri borgarinnar, forgangsraði með jöfnuð í huga og tryggi að enginn líði skort.
Við höfum sýnt það á kjörtímabilinu að við erum full fær um að taka þátt í stjórn borgarinnar. Af eljusemi og dugnaði hafa fjölmargir fulltrúar flokksins í nefndum og ráðum skilað miklum árangri til hagsbóta fyrir borgarbúa – þrátt fyrir að flokkurinn hafi verið í minnihluta.
Á erfiðum tímum þar sem tekjur borgarinnar fara minnkandi og útgjöld aukast er engum betur treystandi en Vinstri hreyfingunni grænu framboði til að forgangsraða rétt. Við munum tryggja velferð allra borgarbúa með sérstakri áherslu á börn. Á sama tíma ætlum við beita okkur fyrir því að atvinnulífið komist aftur í gang.
Vinstri græn standa fyrir jafnrétti, velferð, lýðræði og heiðarleika. Við viljum umhverfisvæna borg þar sem allir geta lifað með reisn. Við viljum halda fyrirtækjum sem veita okkur nauðsynlega grunnþjónustu í almannaeigu. Við viljum réttlátt samfélag.
Category : Forval
